Vildarkerfi

Icelandair Saga Club

 

Til að safna vildarpunktum hjá ÓB þarftu að vera skráður í Icelandair Saga Club.

 

Til að safna Vildarpunktum Icelandair með ÓB lyklinum þarf að hafa hann tengdan Visa Icelandair, American express vildarkorti eða Einstaklingskorti Olís.

 

Mundu eftir Sagakortinu þínu

Viðskiptavinir sem ekki eru handhafar Vildarkorts Visa, American Express eða með Olís kort geta líka safnað vildarpunktum. Það eina sem þú þarft að gera er að  stinga Sagakortinu þínu í kortalesarann áður en þú greiðir. (Ekki er hægt að nota Saga kortið samhliða ÓB lyklinum) Ef kortið þitt er glatað getur þú endurnýjað Sagakortið þitt með því að hringja í síma 50 50 100. Þú færð síðan kortið sent heim og getur strax byrjað að safna Vildarpunktum.

Vildarpunktar Icelandair eru 1,5% af veltu og koma til viðbótar við annan afslátt. Saga Club félagar fá 15 Vildarpunkta fyrir hverjar 1.000 krónur á öllum Olís- og ÓB-stöðvum.

 

Ekki er hægt að safna vildarpunktum með ÓB-frelsi
 



Aukakrónur

 

Söfnun Aukakróna

Það er einfalt að safna Aukakrónum. Það eina sem þú þarft að gera er að nota kreditkort með Aukakrónusöfnun. ÓB endurgreiðir 1,5% af veltu í formi Aukakróna.

 

Millifærsla Aukakróna

Þegar þú vilt nýta uppsafnaðar Aukakrónur hleður þú þeim einfaldlega inn á Aukakrónukortið og notar það síðan eins og venjulegt debitkort. Hleðslan á sér stað í gegnum Einkabanka, þar sem þú sérð einnig yfirlit yfir Aukakrónustöðuna þína. Einnig er hægt að hringja í ráðgjafa- og þjónustuver Landsbankans til að biðja um millifærslu á Aukakrónum. Hægt er að millifæra Aukakrónur frá einum aðila sem safnar Aukakrónum til annars og gefa viðkomandi þannig innistæðuna í Aukakrónum.

 

Notkun Aukakróna

Þú ákveður hvenær og hjá hvaða samstarfsaðila þú ráðstafar Aukakrónunum þínum. Aukakrónukortið, sem er sérstakt úttektarkort, er rafrænt greiðslukort sem eingöngu er hægt að nota hjá samstarfsaðilum.

 

Nánari upplýsingar http://www.landsbankinn.is/einstaklingar/vildarthjonusta/aukakronur/