Sækja um ÓB-frelsi

Sækja um ÓB-lykil
  • Forsíða
  • Fyrirtækið
  • ÓB-lykill
  • ÓB-frelsi
  • Eldsneytisverð
  • Vildarkerfi
  • ÓB Klúbburinn
  • Hafa samband
Vildarkerfi

Vildarklúbbur Icelandair

 

Til að safna vildarpunktum hjá ÓB þarftu að vera skráður í Vildarklúbb Icelandair.

 

Viðskiptavinir með Olískort eða Vildarkort Visa og Icelandair ávinna sér punkta hjá ÓB.

 

Viðskiptavinir sem eru með ÓB lykilinn þurfa að tengja lykilinn við Olís kort eða Visa Icelandair kort til að safna punktum

 

Mundu eftir Sagakortinu þínu

Nú getur þú safnað punktum í Vildarklúbbi Icelandair á öllum þjónustustöðvum ÓB, hvort sem þú greiðir með korti eða peningum. Þannig að í hvert sinn sem þú átt í viðskiptum við ÓB safnar þú Vildarpunktum.

Viðskiptavinir sem ekki eru handhafar Vildarkorts Visa eða með Olís kort geta líka safnað vildarpunktum. Það eina sem þú þarft að gera er að  stinga  Sagakortinu þínu  í kortalesarann áður en þú greiðir. Ef kortið þitt er glatað getur þú endurnýjað Sagakortið þitt með því að hringja í síma 50 50 100. Þú færð síðan kortið sent heim og getur strax byrjað að safna Vildarpunktum.

 

Félagar fá 1.5 % afslátt í formi punkta .

 

Ekki er hægt að safna vildarpunktum með ÓB-frelsi
 


 
Aukakrónur

 

Söfnun Aukakróna

Það er einfalt að safna Aukakrónum. Það eina sem þú þarft að gera er að nota kreditkort með Aukakrónusöfnun. ÓB endurgreiðir 1,% af veltu í formi Aukakróna.

 

Millifærsla Aukakróna

Þegar þú vilt nýta uppsafnaðar Aukakrónur hleður þú þeim einfaldlega inn á Aukakrónukortið og notar það síðan eins og venjulegt debitkort. Hleðslan á sér stað í gegnum Einkabanka, þar sem þú sérð einnig yfirlit yfir Aukakrónustöðuna þína. Einnig er hægt að hringja í ráðgjafa- og þjónustuver Landsbankans til að biðja um millifærslu á Aukakrónum. Hægt er að millifæra Aukakrónur frá einum aðila sem safnar Aukakrónum til annars og gefa viðkomandi þannig innistæðuna í Aukakrónum.

 

Notkun Aukakróna

Þú ákveður hvenær og hjá hvaða samstarfsaðila þú ráðstafar Aukakrónunum þínum. Aukakrónukortið, sem er sérstakt úttektarkort, er rafrænt greiðslukort sem eingöngu er hægt að nota hjá samstarfsaðilum.

 

Nánari upplýsingar http://www.landsbanki.is/einstaklingsthjonusta/greidslukort/aukakronur