ÓB-lykill

Afsláttarkjör Olís og ÓB lykilhafa

  • 15 króna afsláttur af bensín og dísellítra í 10 hvert skipti sem dælt er 25 lítrum eða meira með Olís og ÓB lyklinum til einstaklinga.*
  • 20 krónu afsláttur af hverjum bensín og dísellítra í fyrsta skipti.*
  • 16 krónu afsláttur af hverjum bensín og dísellítra á afmælisdegi Olís og ÓB-lykilhafa.*
  • 7 krónu afsláttur af hverjum bensín/dísellítra hjá ÓB og Olís.*
  • 2/1 af El Reno hamborgara hjá Grill 66 eða 2/1 af rist hjá Redi deli í 5. hvert skipti sem dælt er 25 lítrum eða meira með Olís og ÓB lyklinum til einstaklinga.*
  • Tilboðsdagar hjá Olís og ÓB.
  • Saga Club félagar fá 15 Vildarpunkta fyrir hverjar 1.000 krónur á öllum vörum á Olís og ÓB stöðvum**.
  • 5% afsláttur af smellugasi.
  • 10% afsláttur af Grill 66.
  • 10% afsláttur af bílavörum hjá  þjónustustöðvum Olís.
  • 10% afsláttur á smurstöðvum í samstarfi við Olís.
  • 10% afsláttur af þjónustu og 15% afsláttur af vörum hjá Max 1.***
  • 10% afsláttur af vinnu og 10% - 20% afsláttur eftir vöruflokkum af varahlutum hjá Vélaland
  • 15% afsláttur hjá Poulsen í verslun sinni gegn framvísun Olís og ÓB  lykils, nema af tilboðsvörum. www.poulsen.is

*Sérafslættir gilda eingöngu fyrir einstaklinga og koma ekki til viðbótar við aðra aflætti eða önnur viðskiptakjör. Afslættir gilda ekki á ÓB Fjarðakaup, ÓB Bæjarlind, ÓB Arnarsmára, ÓB Hamraborg og ÓB Hlíðarbraut Akureyri.

Vildarpunktar Icelandair með öllum kaupum

**Safnaðu Vildarpunktum með öllum kaupum hjá Olís og ÓB, hvort sem um eldsneyti eða aðrar vörur eða þjónustu er um að ræða. Þú getur safnað 15 punktum fyrir hverja 1.000 krónur sem greiddar eru á Olís og ÓB hvort sem greitt er með kreditkorti, debetkortið eða peningum. 

Ef þú ert ekki með Olís eða ÓB lykilinn tengdan við kreditkortið þitt sem safnar punktum þá þarft að muna eftir að stinga Saga Club kortin í kortalesarann áður en greitt er með debet- eða kreditkorti. 

Ekki er hægt að safna Vildarpunktum Icelandair á ÓB Fjarðakaup, ÓB Bæjarlind, ÓB Arnarsmára, ÓB Hamraborg Ób Skúlagötu, Ób Selfoss og ÓB Hlíðarbraut Akureyri.

*** Afsláttur gildir ekki við kaup á dekkjum

 

Olís og ÓB-lykill – ekkert pin-númer, ekkert vesen

Sæktu um lykil og auðveldaðu málið. Það er lítið mál að nálgast Olís og OB lykilinn. 
Núna getur þú sótt um lykilinn á vefsíðu OB.is eða Olís.is  með því að smella hér: Sækja um lykil - Lykilinn verður svo sendur til þín.

 

Virkjaðu Olís lykilinn

Þegar þú hefur fengið lykilinn í hendurnar þá  þarftu að virkja hann og tengja við debet eða kreditkort og er það gert í 3 einföldum skrefum á vefsíðu Olís og ÓB:

  • Velur: Virkja lykil
  • Sláðu inn raðnúmerið sem fylgir með lyklinum 
  • Skráðu inn upplýsingar í umsóknarferli
  • Eftir það er lykilinn tilbúinn til notkunar
 

Við notkun á sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB þarf gera eftirfarandi:

  • Leggja lykilinn að skynjaranum til hliðar við dæluna áður en dælubyssan er tekin úr slíðri. 
  • Á skjánum birtist "Hefjið dælingu innan 3 mín"
  • Dælið á bílinn
  • Til að fá kvittun - Ýtið á takka á skjá sem stendur kvittun

- Handhafi lykils getur skipt um greiðslukort inni á mínum síðum hjá olis.is eða ob.is

- Ef handhafi lykils skiptir um greiðslukort sem lykillinn er tengdur við er nauðsynlegt að breyta kortaupplýsingunum á bak við lykilinn. Það er gert inni á Mínum síðum eða með því að hringja í Kortadeild í S: 515-1141. Athugið að nýr greiðslumáti verður að vera á sömu kennitölu og upphaflega var skráð á lykilinn. Ef nota á kort á annarri kennitölu þarf að sækja um nýjan lykil.

- Ekkert árgjald er af Olís og ÓB  lyklinum og enginn binditími. Olís og ÓB lykilinn má einungis notast af handhafa þess.

- Í umsóknarferli Olís og ÓB lykilsins er óskað eftir bæði netfangi og símanúmeri. Olís og ÓB áskilur sér rétt til að nýta áðurnefndar upplýsingar til að senda skráðum viðskiptavinum Olís og ÓB lykilsins SMS og tölvupóst um tilboð eða annað kynningarefni sem að viðskiptavinurinn hefur hag á. Óski viðskiptavinur ekki eftir því að fá SMS eða tölvupóst er einfalt að afþakka inn á á mínum síðum hjá olis.is og ob.is með því að senda tölvupóst til kort@ob.is eða hringja í 515 1141.